Prívat Huliðsheimaganga
Prívat Huliðsheimaganga
- Lengd - 90 mínútur
- Upplifðu Reykjavík á nýjan hátt
Prívat Huliðsheimaganga
Í þessari prívat útgáfu þá leggjum við af stað þegar þér hentar og það er jafnvel hægt að aðlaga gönguna að þínum óskum.
Gakktu með okkur um huliðsheima Íslands þar sem við heimsækjum álfa, tröll og drauga og síðast en ekki síst fræðumst um íslenska galdra.
Þú færð að sjá og upplifa fáfarnar slóðir Reykjavíkur í þessum skemmtilega 90 mínútna göngutúr.
Leiðsögumaðurinn þinn fræðir þig um íslenskar þjóðsögur og sýnir fram á að það er ekki að ástæðulausu sem við erum kölluð söguþjóðin.
- Við hefjum göngu okkar á Ingólfstorgi
- Víkurgarður / Fógetagarðurinn
- Grjótaþorpið
- Landakotskirkja
- Hólavallakirkjugarður
- Reykjavíkurtjörn
- Við endum á Austurvelli
Sögur og skemmtun
Þessi skemmtilega miðbæjarganga er tilvalin fyrir stutta afþreyingu eða hópefli fyrir fyrirtæki,fjölskyldur, saumaklúbba, steggjanir eða gæsanir.
Your Friend In Reykjavik er með yfir 600 fimm stjörnu dóma á síðum eins og Tripadvisor og við kunnum þá list að skemmta og fræða í leiðinni.
Hvað er gott að vita?
Sæmilegt hjólastóla aðgengi og jafnvel hægt að vera með barnavagn
Lærðir og / eða reyndir íslenskir leiðsögumenn
Sumar sögurnar geta verið of hræðilegar fyrir ung börn
Tiltölulega létt 90 mínútna ganga
Auðvelt að nýta sér almenningssamgöngur
Fleiri hundruð fimm stjörnu umsagnir
Á vefsíðum eins og Tripadvisor
Sanngjarnt verð
Enginn falinn bókunarkostnaður
Við endurgreiðum 100%
Þú þarft bara að láta okkur vita lágmark 24+ klst áður en þinn göngutúr á að hefjast.