Ferðin var í alla staði fróðleg og skemmtileg og við mælum með þessari göngu.
Við hjá Your Friend In Reykjavik erum vön að sjá um afþreyingu fyrir saumaklúbba, vina- og starfsmannahópa .
Hægt er til dæmis að byrja á einum bjór saman og inngangi að bjórsögunni, síðan fara í huliðsheimagöngu þar sem við heimsækjum meðal annars Hólavallakirkjugarð og loks enda í mat á góðum þjóðlegum veitingarstað og heyra fleiri sögur. Þinn túr fer eftir hvað hentar þínum hóp.
Hægt er að bæta við pylsustoppi eða öðrum matar & drykkjarstoppum, söfnum, allt fer þetta eftir áhuga þíns hóps.
Mannauðsdeild Marel á Íslandi var með hópeflisdag þar sem farið var í huliðsheima göngu á vegum „Your Friend In Reykjavik”.
Valur leiddi okkur um miðbæ Reykjavíkur og fléttaði saman fróðleik, ævintýrum og álfasögum. Hann var einlægur og gefandi. Við heimsóttum staði í Reykjavik sem áhugavert er að koma á. Hann gerði okkur það kleift að halda 2 metra reglunni svo þetta var Covid-19 frítt hópefli.
Ferðin var í alla staði fróðleg og skemmtileg og við mælum með þessari göngu.
Bestu þakkir fyrir okkur.
Mannauðsdeild Marel á Íslandi
Þriðjudagskvöld forum við starfsmenn á Café Loka saman í Huliðsheimagöngu með Your Friend In Reykjavik.
Þetta var virkilega skemmtileg og fræðandi göngutúr um miðbæ Reykjavíkur með áhugaverðum sögum og fræðslu og gerði fararstjórinn Barði þeim einstaklega góð skil
Áhugaverðir staðir sem við áttum okkur ekki á að eru við nefið á okkur og saga sem við erum að gleyma
Mæli eindregið með þessari ferð
Perla Rúnarsdóttir
Eigandi Café Loka